Sérstaða Lubbaefnisins liggur m.a. í eftirfarandi:
- hnitmiðaðri rannsóknar- og þróunarvinnu höfunda til fjölda ára, m.a. doktorsverkefni Þóru um tileinkun barna á íslensku máhljóðunum sem sýnir fram á tileinkunarröð. Ennfremur nýja rannsókn þar sem gagna var aflað um hljóðþróun og framburð rúmlega 400 barna á aldrinum 2½ árs til 8 ára
- notkun táknrænna hreyfinga fyrir hvert málhljóð sem gerir hljóðin nánast sýnileg og áþreifanleg. Byggt er áralangri reynslu og frumkvöðulsstarfi Eyrúnar af þróun tjáskiptamátans Tákna með tali í vinnu með börnum með fjölbreytileg frávik í máli og tali, m.a. barna alvarleg framburðarfrávik
- táknrænu hreyfingarnar eru íslensk hugsmíð höfunda sem hefur mikla sérstöðu þegar tekið er mið af sambærilegu efni í alþjóðlegu samhengi. Hér má nefna að táknrænar hreyfingar sérhljóðanna tengjast allar tilfinningum og líðan og táknrænar hreyfingar samhljóðanna hinum ýmsu athöfnum
- byggt er á Hljóðanámi í þrívídd, hugmyndafræðilegri nálgun er höfundar hafa þróað og felur í sér samþættingu skynleiða; sjón-, heyrnar- og hreyfi-/snertiskyns sem auðveldar og hraðar tileinkun hljóðanna og vistun þeirra í minni
- málbeinum Lubba fyrir hvert málhljóð í litum Hljóðaregnbogans sem vekja áhuga barnanna og gera hljóðanámið að skemmtilegum leik
- áherslu á brúarsmíð á milli málhljóða og bókstafa með stuðningi táknrænu hreyfinganna. Lubbi er sannkallaður brúarsmiður
- sérstakri áherslu á hljóðavitund sem liggur til grundvallar umskráningu sem er forsenda lestrarfærni
- áhersla á hljóðtengingu með stuðningi málbeina og hringja með táknrænum hreyfingum, sbr. vinnuborð Lubba sem hann notar til að læra að lesa
- tengingu við íslenska náttúru og staðhætti
- vísum fyrir hvert málhljóð eftir Þórarin Eldjárn
Nánari umfjöllun um hin ýmsu atriði er að finna í ítarlegri handbók sem fylgir Hljóðasmiðju Lubba.
Strict Standards: Only variables should be assigned by reference in
/home/lubbi/public_html/modules/mod_images/mod_images.php on line
35
Strict Standards: Non-static method modImagesHelper::getList() should not be called statically in
/home/lubbi/public_html/modules/mod_images/mod_images.php on line
42