Hljóðasmiðja 4 ásamt vinnuborði Lubba
Lagður grunnur að lestri og ritun
- Áhersla á hljóðtengingu, brúarsmíð á milli stafs og hljóðs, lestur orða og einfaldra setninga ásamt ritun á grunni hljóðanáms.
- Gagnast eldri börnum leikskóla, yngri börnum grunnskóla og breiðum hópi barna og ungmenna sem glíma við lestrar- og stafsetningarvanda.
Vinnugögn: VINNUBORÐ LUBBA ásamt stórum málbeinum í litum hljóðaregnbogans, minni beinum og hringjum með táknrænum hreyfingum. Einnig fylgja auka hringir og bein með spurningamerki sem gilda fyrir öll hljóð/stafi.